Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

BERMÚDA

bermuda

BERMÚDA

Bermúdaeyjar eru brezk krúnunýlenda með sjálfstjórn. Flatarmál er 53 km², íbúafjöldi 57.000 (1998), höfuðborgin er Hamilton og tungumálið enska. Bermúdaeyjar eru afskekktur eyjaklasi (>150 eyjar). Þær eru í Vestur-Atlantshafinu á 32° 18’N og 64° 46′ V. Vegna golfstraumsins eru þær nyrztu kóraleyjar heimsins. Kóralrifin hafa krafizt verulegra fórna í gegnum tíðina, því að yfir 120 skipsflök liggja þar á sjávarbotni. Því voru eyjarnar oft kallaðar Djöflaeyjar. Hagstætt loftslag og skattalöggjöf gera það að verkum, að ferðamenn og fjárfestar flykkjast þangað. Bermúdaþríhyrningurinn er hafssvæðið inna lína, sem dregnar eru á milli Bermúdaeyja, Puerto Rico og staðar í Mexíkóflóa. Margir eru þeirrar skoðunar að fjöldi farartækja á sjó og í lofti hafi horfið þar sporlaust á dularfullan hátt, enda hefur ekki verið hægt að útskýra meginhluta þeirra atvika.

Bermúdaeyjar teygjast 35 km frá norðaustri til suðvesturs, að meðaltali á 2 km breiðu belti. Eyjarnar standa á kalkgrunni, sem stendur á stóru neðansjávareldfjalli.

 

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )