Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Básendar

Básendar eða Bátssandar. Forn útræðis- og verzlunarstaður skammt sunnan við Stafnes. Þar var ein af   höfnum einokunarverzlunarinnar. Verzlunarsvæðið náði yfir Hafnir, Stafnes og Miðnes.

Básenda tók af í ofsalegu sjávarflóði aðfararnótt 9. janúar 1799. Flóðið hreif flest hús með sér, stór og smá. Fólk varð að flýja og sumt varð að skríða upp um þekjuna til að komast út. Samt drukknaði ekki nema ein gömul kona. Þetta var meðal mestu sjávarflóða, sem um getur við strendur Íslands.

 

Myndasafn

Í grennd

Sögustaðir Reykjanesi
Ýmsir staðir tengdir sögu landshlutans Almenningur Reykjanes Básendar Brennisteinsfjöll Brúin Milli Heimsálfanna Eldborg…
Stafnes
Stafnes var höfuðból að fornu. Þar var um aldir mikið útræði og fjölbýli á staðnum. Konungútgerð hófst þar um miðja 16. öld og stóð til 1769. Voru …

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )