Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Barbados

Barbados er hluti af Litlu-Antilleyjum. Þar er þingbundin konungsstjórn í Brezka Samveldinu. Flatarmál eyjarinnar er 431 km², íbúafjöldi er 250.000, höfuðstaður er Bridgetown og tungumálið er enska. Áætlunarflug frá Atlanta, Boston, Chicago, Miami, New York, Washington, Montreal, Toronto, San Juan, London og Frankfurt. Eyjan er mjög vel tengd flugsamgöngum eyja á milli í Karíbahafi. Leiguflug eftir þörfum frá ýmsum flugvöllum í Evrópu.

Nokkur skemmtiferðaskip koma við í Bridgetown á leið sinni frá Miami eða San Juan og öðrum eyjum. Stundum er hægt að komast með flutningaskipum frá Evrópu til Barbados og þaðan til annarra eyja. Barbados er löngu þekkt og viðurkennd sem heilnæmur ferðamannastaður. Hún er austust vesturindísku eyjanna.

Þar búa u.þ.b. 600 íbúar á hverjum km², sem gerir hana að einu þéttbýlasta svæði jarðar. Sykurreyrsakrar, sem þekja stóran hluta eyjarinnar, verða stöðugt minni og pálmum girtar strendur prýða sólareyjuna, sem einnig er nefnd Litla-England vegna 300 ára langrar stjórnar Breta á eyjunni. Höfuðstaðurinn, Bridgetown, stendur við hinn skjólsæla Carlisleflóa á suðvesturströnd eyjarinnar. Utan borgarinnar er byggðin frjálslegri í formi. Vegakerfið teygir sig eins og net út frá Bridgetown og hafði snemma góð efnahagsleg áhrif á uppbyggingu eyjarinnar.

Myndasafn

Í grennd

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )