, innarlega í Þjórsárdal, er meðal fegurstu vinja í jaðri hálendisins. Gjárfoss í Rauðá, aðrir fossar og iðjagrænt umhverfið, ljá þessari perlu mikla fegurð og aðdráttarafl. Líklegt er, að Þjórsá hafi myndað Gjána, þegar hún rann þarna um. Varnargarðurinn milli Sandafells og Skeljafells varnar ánni að renna þarna um.
Eitt hinna yngri Tungnaárhrauna hefur náð að falla fram úr gjánni og skilja eftir hraunlög í botni, á veggjum og brúnum Gjárinnar. Þar gefur að líta áhugaverðar hraunmyndanir. Það er upplagt að ganga á u.þ.b. 10 mínútum inn í Gjána frá Stöng eða aka upp með henni og ganga niður í hana frá frábærum útsýnisstað við veginn, sem liggur upp á Haf.