Íslenski ferðavefurinn

  • endursetja

Kambur

Kampur Strandir
Mynd: Kambur og Veiðileysufjörður

Kambur er sérstakt og áberandi fjall á nesinu milli Reykjarfjarðar og Veiðileysufjarðar. Upp úr Kambinum rísa þverhníptir tindar, sem álengdar minna á tröllagreiðu. Ekki er bílfært fyrir Kamb en á þessari leið er margt að sjá. Gott er að hefja gönguna uppi á Veiðileysuhálsi, þar sem gott er að leggja bílnum. Eins væri hægt að fara rólega og gista eina nótt í tjaldi úti við eyðibýlið Kamb. Ganga kringum Kamb er fremur auðveld og við hæfi allra fjölskyldumeðlima.

Gengið er niður af Veiðileysuhálsi og sneitt niður Hjallana þar til komið er niður undir sjóinn rétt utan við norðanverðan botn Veiðileysufjarðar. Samkvæmt þjóðsögunni er nafn fjarðarins þannig til komið að kerling nokkur sem Kráka hét missti tvo syni sína í róðri á firðinum. Lagði hún þá á fjörðinn að þar myndi aldrei framar fast bein úr sjó. Það þykir hafa gengið eftir.

Gengið er út með firðinum eftir greinilegum slóða um svæði sem einkennist af undarlegaum sandsteinsmyndunum. Þar er upplagt að stansa, gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn um tíma og virða fyrir sér listaverk náttúrunnar. Utarlega á nesinu stendur eyðibýlið Kambur. Neðan þess, við sjóinn, er gamall stekkur þar sem upplagt er að tjalda ef menn ætla að stoppa lengur. Á Kambi var búið til ársins 1954 og húsið stendur enn. Í grennd við bæinn er grjótdysin Spænskradys.

Þegar gengið er áfram, breytist landslag lítillega og komið er að Látrum. Þar nýttu Kambsbændur engjar. Frá Látrum var útræði fyrrum og þar er talsverður reki.

Nú opnast útsýni inn Reykjarfjörð. Til vinstri rís mikil klettaborg með ótal glufum og gjám og miklu fuglalífi. Gatan breikkar og að hluta er hún hlaðin hönduglega yfir mestu farartálmana. Inn í ströndina skerast ótal litlar víkur og komið er að eyðibýlinu Halldórsstöðum. Ekki er vitað með vissu, hvenær bærinn fór í eyði.

Úr landi Halldórsstaða byggðist verslunarstaðurinn Kúvíkur sem um 250 ára bil var eini verslunarstaðurinn á Ströndum frá því um aldamótin 1600. Þar voru um tíma tvær verzlanir og heimavistarskóli var rekinn þar einn vetur (1916). Þar má ennþá sjá merki umsvifanna, til dæmis pott þar sem hákarlalýsið var soðið í og tóftir sem gefa hugmynd um skipulag kaupstaðarins. Frá Kúvíkum er gengið upp á þjóðveginn og með honum upp á Veiðileysuhálsinn á ný.

Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér minningarnar!

 

 

 

Myndasafn

Í grennd

Djúpavík
Djúpavík er í landi Kjósar, gamals eyðibýlis, sem er í hálfhringlaga dalkvos í Reykjarfirði. Árið 1917 var Guðjón Jónsson, fyrsti íbúinn, skráður t…
Sögustaðir Ströndum
Sögustaðir eru fjölmargir á Ströndum, en hér má sjá nokkra þeirra. Árneskirkja Bjarnarfjörður nyrðri Bjarnarfjörður syðri Djúpa…

Allar ábendingar eru velkomnar. Reynum að hafa staðreyndir eins réttar og mögulegt er.

Veldu landshluta

nat.is er upplýsinga- og ferðavefur um Ísland sem var stofnaður 1998.  Íslenska útgáfan er is.nat.is.    ( nat@nat.is )